Sagan
Um okkur
Við erum Valdimar Jóhannsson og Stefán Þór Ágústsson, stofnendur Boltanets Fjarþjálfunar.
Hugmyndin
Hvernig Boltanet varð til
Við ólumst báðir upp á Selfossi þar sem við fórum í gegnum alla yngri flokka félagsins. Stór hluti æskunnar fór í að sparka bolta, æfa aukalega og eyða óteljandi klukkutímum saman á fótboltavellinum. Við deildum sama markmiði – að verða eins góðir knattspyrnumenn og mögulegt væri.
Þrátt fyrir mikinn metnað fannst okkur oft vanta skýrari leið til að vita hvað ætti að æfa, hvernig ætti að æfa og hvernig mætti bæta sig markvisst. Flestir eru tilbúnir að leggja á sig aukavinnuna en hafa ekki alltaf aðgang að skipulagðri leiðsögn utan liðsæfinga.
Það er einmitt ástæðan fyrir því að Boltanet Fjarþjálfun varð til. Markmið okkar er að veita ungum knattspyrnumönnum þann leiðarvísi sem við hefðum sjálfir viljað hafa þegar við vorum yngri.
Hugmyndin að Boltaneti kviknaði veturinn 2025 og síðan þá höfum við unnið stöðugt að því að þróa þjónustuna. Við hlustum á notendur, bætum efnið reglulega og leitum sífellt nýrra leiða til að gera upplifunina enn betri.
Stofnandi
Valdimar Jóhannsson
Valdimar er með B.Sc. í íþróttafræði og leggur áherslu á að æfingarnar byggi bæði á reynslu úr knattspyrnunni og þekkingu úr íþróttafræði. Markmiðið er að sameina hagnýta reynslu og faglega nálgun til að skila æfingum sem raunverulega hjálpa leikmönnum að taka næsta skref.
Valdimar er virkur knattspyrnumaður og hefur jafnframt reynslu af þjálfun yngri iðkenda.
Stofnandi
Stefán Þór Ágústsson
Stefán Þór er virkur knattspyrnumaður með brennandi áhuga á að gera yngri leikmenn betri. Hann hefur reynslu af þjálfun og þekkir vel til þeirra áskorana sem ungir leikmenn standa frammi fyrir þegar kemur að aukaþjálfun.
Við trúum því að árangur byggist ekki aðeins á hæfileikum heldur einnig á samkvæmni, aga og réttum æfingum.